Davis-bikarinn
Davis-bikarinn er heimsmeistaramót karlalandsliða í tennis sem er haldið árlega. Keppnin er haldin af Alþjóðatennisambandinu og er útsláttarkeppni. Sambærilegt tennismót kvennalandsliða er Fed-bikarinn.
Uppbygging
[breyta | breyta frumkóða]Landslið keppa í þremur svæðiskeppnum (Ameríka, Asía/Eyjaálfa og Evrópa/Afríka). Landslið eru dregin í riðla eftir styrkleikalista sem er gefinn út af Alþjóðatennisambandinu. Gull og silfurhafar síðasta móts eru alltaf í efstu styrkleikasætunum.
Landslið í A-riðli keppa á svæðismóti. Sigurvegarar fyrstu umferðar spila umspilunarleik við taplið A-riðilsins. Þau landslið sem sigra umspilunarleikinn spila í Heimsmeistarariðlinum að ári liðnu, en þau lið sem tapa keppa áfram í A-riðli á næsta ári.
Umspilunarleikir eru spilaðir í A- og B-riðlum, þar sem tapliðin fara niður um riðil. Lið í C- og D-riðli spila sín á milli í deild þar sem stigagjöfin ræður hvaða lið fer upp um deild og hvaða lið fer niður um deild.
Riðlakerfið (2010)
[breyta | breyta frumkóða]
Stig |
Riðlar | |||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 |
Heimsmeistara riðill | |||||||
2 |
Ameríku Riðill A |
Evrópu og Afríku Riðill A |
Asíu og Eyjaálfu Riðill A | |||||
3 |
Ameríku Riðill B |
Evrópu og Afríku Riðill B |
Asíu og Eyjaálfu Riðill B | |||||
4 |
Ameríku Riðill C |
Evrópu Riðill C |
Afríku Riðill C |
Asíu og Eyjaálfu Riðill C | ||||
5 |
Ameríku Riðill D |
Asíu og Eyjaálfu Riðill D |