Dílaskóf
Dílaskóf | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Díalskóf í Great Smoky Mountains í Bandaríkjunum.
| ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Peltigera leucophlebia Nyl. |
Dílaskóf (fræðiheiti: Peltigera leucophlebia) er flétta af engjaskófarætt, ættkvísl engjaskófa.[1] Hún er mjög algeng um allt land upp í 1300 metra hæð yfir sjávarmáli. Dílaskóf vex einkum yfir mosa í mólendi, kjarri, fjallshlíðum eða mögru graslendi.[2]
Útlit
[breyta | breyta frumkóða]Þal dílaskófar er stórt, um 10-20 cm í þvermál með ávala sepa 2-4 cm í þvermál. Liturinn er fagurgrænn í vætu en grágrænn eða grábrúnn í þurrki. Efra borð þalsins en alsett dökkbláum eða svartleitum dílum sem standa aðeins upp úr þalinu. Í dílunum eru bláþörungar en í græna hluta þalsins eru grænþörungar.[3]
Dílaskóf hefur skýrt æðanet á neðra borði þalsins og greinist þannig frá flannaskóf.[2]
Samlífi
[breyta | breyta frumkóða]Dílaskóf er hýsill fyrir smásveppinn Pyrenidium actinellum á Íslandi.[4]
Nytjar
[breyta | breyta frumkóða]Dílaskóf var áður fyrr höfð í graut.[5]
Efnasambönd
[breyta | breyta frumkóða]Dílaskóf framleiðir fléttuefnasamböndin gyrófórinsýru, tenuiorin, methylgyrófórat og triterpensambönd.[2]
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Flóra Íslands. Dílaskóf Skoðað þann 12. september 2016.
- ↑ 2,0 2,1 2,2 Fléttuhandbókin. Dílaskóf Sótt þann 12. september 2016.
- ↑ Náttúrufræðistofnun Íslands. Dílaskóf[óvirkur tengill] Sótt þann 12. september 2016.
- ↑ Helgi Hallgrímsson & Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir (2004). Íslenskt sveppatal I - smásveppir. Geymt 17 október 2020 í Wayback Machine Fjölrit Náttúrufræðistofnunar. Náttúrufræðistofnun Íslands. ISSN 1027-832X
- ↑ Hörður Kristinsson (1968). Fléttunytjar. Flóra: tímarit um íslenska grasafræði 6(1): 19-25