Fara í innihald

Desi Bouterse

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá Dési Bouterse)
Desi Bouterse
Forseti Súrínam
Í embætti
19. ágúst 2010 – 16. júlí 2020
VaraforsetiRobert Ameerali (2010–2015)
Ashwin Adhin (2015–2020)
ForveriRonald Venetiaan
EftirmaðurChan Santokhi
Persónulegar upplýsingar
Fæddur13. október 1945 (1945-10-13) (79 ára)
Domburg, Súrínam
ÞjóðerniSúrínamskur
StjórnmálaflokkurSúrínamski þjóðlegi lýðræðisflokkurinn
MakiIngrid Figueira (skilin)
Ingrid Waldring (1990–)
BörnPeggy
Dino
Jen-ai

Desiré Delano Bouterse (f. 13. október 1945 í Domburg, Súrínam) er fyrrverandi forseti Súrínam. Frá 1980 til 1988 var hann einræðisherra eftir að hafa rænt völdum með aðstoð hersins. Bouterse er formaður og stofnandi hins Súrínamíska þjóðlega lýðræðisflokks (hollensku: Nationale Democratische Partij (NDP), sem með 19 sæti er stærsti flokkurinn í flokkabandalagi sem nefnt er Megacombinatie (MC) og er Bouterse einnig formaður þess bandalags. Í Súrínam er forsetinn kosinn af þinginu og þann 19 júlí 2010 var Bouterse með 36 af alls 50 þingatkvæðum kosinn til forseta Súrínam. Þingið í Súrínam er í einni deild og telur 51. Þáverandi - fráfarandi - forseti, Ronald Venetiaan, sem ennfremur var þingmaður var ógildur til kosningarinnar. Þann 12 ágúst 2010 var Bouterse formlega settur í embætti í glæsilegri athöfn þingsins.[1][2]

Frá 1975, þegar Súrínam áskotnaðist sjálfstæði og fullveldi frá Hollandi, hefur Bouterse smámsaman orðið einn umdeildasti maður landsins. Bouterse er til að mynda talinn ábyrgur á hinum svokölluðu desembermorðum ársins 1982 þar sem fimmtán meðlimir stjórnarandstöðunnar voru myrtir. Ennfremur er hann umdeildur í Hollandi og sökum aðkomu sinnar að ólöglegum flutningi eiturlyfja dæmdur til 11 ára fangelsis þar í landi. Sökum dóms þessa hefur Europol gefið út alþjóðlega handtökuskipun gegn honum. Hins vegar nýtur hann sökum stöðu sinnar diplómatafriðhelgi og getur því ferðast um heiminn án hættu á því að vera handtekinn.[3][4] Kosning Bouterse til forseta olli miklum skaða á stjórnmálasamskiptum Súrínam og Hollands.

Skömmu eftir kjör Bouterse kom Maxime Verhagen, þáverandi utanríkisráðherra Hollands, þeim skilaboðum áleiðis á blaðamannfundi að Bouterse væri „einungis velkominn til Hollands til að afplána fangelsisdóm sinn“.[5]

Í desember 2011, náðaði Bouterse fósturson sinn Romano Meriba, sem árið 2005 var dæmdur til 15 ára fangelsis fyrir rán og morð, á kínverskum verslunarmanni, árið 2002. Meriba var ennfremur dæmdur fyrir að kasta handsprengju að húsi hollenska sendiherrans. Dómarinn Valstein-Montnor sagði að sönnunargögnin sýndu fram á fram yfir raunhæfan vafa að Meriba hefði reynt að fremja rán í húsi sendiherrans svipað og í tilfelli kínverska verslunarmannsins. Eftir að verðir hindruðu hann í ránstilrauninni hefði hann kastað handsprengju úr bifreið að heimili sendiherrans.

Náðun þessi var vitaskuld umdeild og sú fyrsta þar í landi þar sem var náðun á morði og ráni. Starfsfólk Bouterse sagði að sú staðreynd að Meriba væri fóstursonar forsetans hefði ekkert með náðunina að gera og að stórvægileg lagarök hefðu legið fyrir ákvörðuninni.

Þann 29. nóvember árið 2019 dæmdi Hæstiréttur Súrínam Bouterse í 20 ára fangelsi fyrir aðild hans að desembermorðunum árið 1982. Bouterse var staddur í opinberri heimsókn til Kína þegar dómurinn féll en að sögn lögmanns hans hyggst hann áfrýja dómnum.[6]

Flokkur Bouterse tapaði þingsætum í kosningum árið 2020.[7] Chan Santokhi var því kjörinn nýr forseti Súrínam þann 13. júlí og tók við embætti þremur dögum síðar.[8]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. "Inauguratie Bouterse verschoven naar 12 augustus", De Ware Tijd online, 23 juli 2010
  2. Omstreden Bouterse beëdigd als president - De Volkskrant, 12 augustus 2010
  3. 'Arrestatiebevel tegen staatshoofd mag niet'[óvirkur tengill] , De Telegraaf, 19 juli 2010
  4. President Bouterse kan zijn land niet uit, NRC Handelsblad, 1 juni 2010
  5. 'Verkiezing Bouterse niet zonder gevolgen', NU.nl, 19 juli 2010
  6. „For­seti Súrínam dæmd­ur í 20 ára fang­elsi“. mbl.is. 29. nóvember 2019. Sótt 30. nóvember 2019.
  7. „VHP grote winnaar verkiezingen 25 mei 2020“. GFC Nieuws (hollenska). Sótt 26. maí 2020.
  8. „Live blog: Verkiezing president en vicepresident Suriname“. De Ware Tijd (hollenska). Afrit af upprunalegu geymt þann 15 janúar 2021. Sótt 13. júlí 2020.


Fyrirrennari:
Ronald Venetiaan
Forseti Súrínam
(19. ágúst 201016. júlí 2020)
Eftirmaður:
Chan Santokhi