Charles Garvice
Útlit
Charles Garvice | |
---|---|
Fæddur | Charles Garvice 24. ágúst 1850 |
Dáinn | 1. mars 1920 (69 ára) |
Önnur nöfn | Caroline Hart, Chas. Garvice, Charles Gibson |
Störf | Rithöfundur |
Maki | Elizabeth Jones |
Charles Garvice (24. ágúst 1850 - 1. mars 1920) var afkastamikill breskur rithöfundur sem samdi yfir 150 ástarsögur. Sumar bækur gaf hann út undir dulnefninu Caroline Hart. Hann var „fengsælasti höfundurinn á Bretlandi,“ samkvæmt Arnold Bennett árið 1910. Árið 1914 hafði samtals selst yfir sjö milljónir eintaka af bókunum hans á heimsvísu. Frá 1913 seldust árlega 1,75 milljónir bóka sem hélst við þar til dauðadags. Bækur hans voru þýddar á mörg tungumál, þar á meðal íslensku. Þrátt fyrir þennan árangur fengu bækurnar hans slæmar viðtökur frá gagnrýnendum og eru flestar fallnar í gleymsku.
Ritverk
[breyta | breyta frumkóða]Charles Garvice skrifaði yfir 150 bækur, af þeim voru 25 skrifaðar undir dulnefninu Caroline Hart. Um það bil 5 bækur hafa verið þýddar á íslensku.
Íslensk útgáfa | Upprunaleg útgáfa | ||
---|---|---|---|
Titill | Útgáfuár | Titill | Útgáfuár |
Cymbelína hin fagra | 1916 | Sweet Cymbeline | 1907 |
Í vargaklóm | 1923 | ? | - |
Einþykka stúlkan | 1927 | ? | - |
Í örlagafjötrum | 1938 | ? | - |
Veronika | 1942 | ? | - |