Caspar David Friedrich
Útlit
Caspar David Friedrich (5. september 1774 – 7. maí 1840) var þýskur listmálari sem var einn helsti fulltrúi rómantísku stefnunar þýsku. Friedrich fæddist í borginni Greifswald sem þá var hluti af Sænsku Pommern, en hann telst samt sem áður til þýskra málara. Friedrich flutti til Dresden 1798, og var þar til æviloka. Hann var vinur Goethe og Novalis. Einnig vinur hans Philipp Otto Runge, þeir vildu báðir eitthvað nýtt og komu með nýjunga í málaralistina.
Eitt hans fyrsta stóra verk var „Cross in the Mountains„ eða Tetschen Altar, 1807-1808.