Brjóstvísir
Útlit
Brjóstvísir (eða uppskrift eða hávísir) er í prentlist tala, tákn eða texti sem er hægra eða vinstra megin við annað tákn og birtist ofar á línunni.
Notkun
[breyta | breyta frumkóða]Brjóstvísar eru notaðir í stærðfræðiformúlum sem veldisvísar, í kjarneðlisfræði til að gefa til kynna massatölu frumeindakjarna og í prentlist til að gefa til kynna neðarmálsgrein.
Brjóstvísar í Unicode
[breyta | breyta frumkóða]Í Unicode eru fjölmörg tákn fyrir brjóstvísa, s.s. ⁰¹²³⁴⁵⁶⁷⁸⁹ fyrir veldisvísa ásamt öðrum táknum eins og ⁺⁻⁼⁽⁾ⁿ og ⁱ.
Tengt efni
[breyta | breyta frumkóða]Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist brjóstvísum.