Fara í innihald

Brandari

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Brandari eða skrýtla er stutt saga eða spurning sem sett er fram í hálfkæringi í þeim tilgangi að vekja hlátur hjá lesanda eða áheyranda. Til eru mismunandi gerðir brandara og má þar nefna fimmaurabrandara, pabbabrandara, dónabrandara og tarsanbrandara.[1]

Íslensk fyndni er safn séríslenska brandara.

Gamalt dæmi um notkun orðsins brandari sem skrýtla er í greinasafninu Við uppspretturnar eftir Einar Ó. Sveinsson, frá 1956.[2][3] Orðið er þó mun eldra í þessari merkingu[4] sem kemur upprunalega úr dönsku 19. aldar máli.[5] Upprunaleg merking orðsins brandari er skip sem kveikt var í og fleytt að skipum óvinarins til að kveikja í þeim í sjóorrustu.[6][7]

  1. ↑ Guðrún Kvaran (27.11.2013). „Hvers konar brandarar eru „fimmaurabrandarar"?“. Vísindavefurinn.
  2. ↑ Haukur Már Helgason (27.6.2000). „Hvenær kemur orðið brandari fyrst fram í rituðu máli og hvernig tengist það gamansemi?“. Vísindavefurinn.
  3. ↑ „brandari“. Ritmálssafn Orðabókar Háskóla Íslands.
  4. ↑ „Purpurarauði kjóllinn“. Dagsbrún. 17. ágúst 1908. bls. 2. Sótt 14. október 2024. „Í huganum heyrði hún stúlkurnar hlæja og flissa, heyrði Bachman gamla æpa brandara sína, sem enginn skyldi [...]“
  5. ↑ „brander“. Ordnet.dk. Den danske ordbog.
  6. ↑ Børresen, Jacob (29 ágúst 2024), „brander – skip“, Store norske leksikon (norska), sótt 14 október 2024
  7. ↑ sjá dæmi á Tímarit.is

Ytri tenglar

[breyta | breyta frumkóða]