Bergþóra Snæbjörnsdóttir
Útlit
Bergþóra Snæbjörnsdóttir (f. 1985) er íslenskur rithöfundur.
Bergþóra ólst upp við Úlfljótsvatn í Grafningi. Hún lauk námi í sálfræði og ritlist frá Háskóla Íslands og hefur stundað nám í hagnýtri menningarmiðlun við sama skóla.
Bergþóra hefur gefið út ljóðabækur, textasafn og skáldsögu. Hún hefur komið að vinnu við kvikmyndahandrit, heimildarmyndagerð, bókaútgáfu og sinnt verkefnastjórnun á sviði lista og menningar. Bergþóra hefur hlotið styrki frá Kvikmyndasjóði Íslands, Myndlistarsjóði og menningarsjóðum Norðurlandaráðs.[1]
Árið 2020 hlaut Bergþóra Fjöruverðlaunin i flokki fagurbókmennta fyrir skáldsöguna Svínshöfuð.[2]
Ritaskrá
[breyta | breyta frumkóða]- 2024 Duft, söfnuður fallega fólksins (skáldsaga)
- 2022 Allt sem rennur (ljóðabók)
- 2019 Svínshöfuð (skáldsaga)
- 2017 Flórída (ljóðabók)
- 2013 Dagar undrabarnsins eru á enda (textasafn)
- 2011 Daloon dagar (ljóðabók)
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Benedikt.is, „Bergþóra Snæbjörnsdóttir“ (skoðað 28. janúar 2020)
- ↑ Fjoruverdlaunin.is, „Fjöruverðlaunin 2020“ (skoðað 28. janúar 2020)