Baffinsland
Baffinsland (líklega sama eyja og fornmenn nefndu Helluland) er fimmta stærsta eyja heims, 507.451 ferkílómetrar. Hún er hluti af sjálfstjórnarsvæðinu Núnavút í Kanada og er stærst af kanadísku heimskautaeyjunum. Eyjan er næstum því fimm sinnum stærri en Ísland.[1]
Eyjan er nefnd eftir enska landkönnuðinum William Baffin, sem kom þangað árið 1616. Á norðausturströnd eyjarinnar er fjallgarðurinn Baffinsfjöll og þar eru há og hrikaleg fjöll, þeirra á meðal Óðinsfjall (Mount Odin) og Ásgarðsfjall (Mount Asgard), bæði yfir 2000 metrar á hæð. Þórsfjall (Mount Thor) er aðeins 1675 metra hátt en þar er talið vera hæsta lóðrétta standberg í heimi, 1250 m. Á miðri eynni er Barnesjökull en hann fer stöðugt minnkandi. Auyuittuq-þjóðgarðurinn er um 19.000 ferkílómetrar.
Höfuðstaður Núnavút, Iqaluit, er syðst á eynni. Þar eru einnig nokkrir aðrir þéttbýlisstaðir og er íbúafjöldi eyjarinnar um 11.000 manns.
Myndir
[breyta | breyta frumkóða]-
Norðausturströnd Baffinslands
-
Óðinsfjall er hæsti toppur Baffinslands
-
Ásgarðsfjall. Það var notað í opnunaratriði James Bond myndarinnar The Spy Who Loved Me
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Síðustu óbyggðir norðursins; grein í Morgunblaðinu 1988
- Tvö ár á Baffin-eyju; 1. grein í Heimskringlu 1945
- Tvö ár á Baffin-eyju; 2. grein í Heimskringlu 1945
- Tvö ár á Baffin-eyju; 3. grein í Heimskringlu 1945
- Tvö ár á Baffin-eyju; 4. grein í Heimskringlu 1945
- Tvö ár á Baffin-eyju; 5. grein í Heimskringlu 1945
- Tvö ár á Baffin-eyju; 6. grein í Heimskringlu 1945