Arnes Pálsson
Útlit
Arnes Pálsson (fæddur 1719) var útilegumaður og tugthúslimur. Hann komst fyrst undir manna hendur árið 1765. Hann er fæddur á Seltjarnarnesi og alinn upp á Kjalarnesi. Hann var útilegumaður í 9 ár en átti athvarf á bæjum. Hann fór til Vestfjarða en kom aftur og hafðist við í Akrafjalli en bændur í nágrenni fjallsins söfnuðu liði til að fanga hann. Arnes komst undan með að laumast meðal leitarmanna.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Arnes Pálsson - útilegumaður
- Þorsteinn Jónsson frá Hamri, Soddan manneskja sem Arnes er..., Tíminn Sunnudagsblað - 37. tölublað (18.11.1962)