Arnór Benónýsson
Arnór Benónýsson (fæddur 1954), leikari, leikstjóri og kennari. Formaður Héraðssambands Suður-Þingeyinga frá 2005.
Brot af verkum sem Arnór hefur leikstýrt
[breyta | breyta frumkóða]- Æsa, ást og friður (Framhaldsskólinn á laugum)
- Ólafía (Efling)
- Kvennaskólaævintýrið (Efling)
- Kabarett (Efling)
- Láttu ekki deigan síga Guðmundur (Efling)
- Síldin kemur og síldin fer (Efling - Valin áhugaleiksýning ársins)
- 7 stelpur (Efling)
- Augun þín blá (Efling)
- Fiðlarinn á Þakinu ( Efling -)
- Landsmótið (Efling - Valin áhugaleiksýning ársins)
- Þrúgur reiðinnar ( Leikfélag Húsavíkur)
- Íslandsklukkan ( Leikfélag Húsavíkur)
Arnór Benónýsson er fæddur og uppalinn á Hömrum í Reykjadal ásamt sex systkinum sínum. Hann flutti ungur að heiman og bjó um tíma í Reykjavík ásamt ýmsum öðrum stöðum á landinu, s.s. Ísafirði og Akureyri, Síðusta áratugin hefur hann búið á Laugum í Reykjadal þar sem hann kennir við Framhaldsskólann á Laugum þar sem hann tekur nú þátt í uppbyggingu á þróunarverkefni opins kerfis í framhaldsskólum. Ásamt kennslunni hefur hann verið að leikstýra hjá leikfélagi UMF Eflingar sem og Leikfélagi Húsavíkur við gríðarlega góðar undirtektir. Einnig hefur hann sinnt hinum ýmsum hlutverkum í sveitarfélaginu og situr nú í sveitarstjórn Þingeyjarsveitar. Arnór er giftur Ragnheiði Þórhallsdóttur og eiga þau saman tvö börn þá Benóný og Þórhall Arnórssyni, fyrir á Arnór önnur börn úr fyrri samböndum.