Fara í innihald

Apple I

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Apple I

Apple I var fyrsta tölvan frá Apple. Hún var hönnuð og handsmíðuð af Steve Wozniak. Félagi Wozniaks, Steve Jobs, var með hugmynd til að selja tölvuna. Apple I var fyrsta varan frá Apple og var sýnd á Homebrew Computer Club í Palo Alto, Kaliforníu. Hún var sett á markað júlí 1976 og kostaði US$666,66. Bara 200 tölvur voru framleiddar og hver og ein var seld sem pakki.

  Þessi Applegrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.