1475
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |
Árið 1475 (MCDLXXV í rómverskum tölum)
Ísland
[breyta | breyta frumkóða]- Ensku öldinni lauk.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 10. janúar - Stefán 3. af Moldavíu sigraði innrásarher Ottómana.
- 15. janúar - Ísabella 1. af Kastilíu tilkynnti að eiginmaður hennar Ferdínand, prins af Aragóníu yrði sameiginlegur ráðandi Kastilíu með sér og var gerður að konungi.
- 10. mars - Frakkar náðu borginni Perpignan af spænska kónginum Jóhanni II af Aragóníu.
- 3. apríl - Afonso 5. konungur Portúgals lýsti stríði á hendur Ísabellu og Ferdínand, konungshjónum Kastilíu.
- 15. júní - Bókasafnið í Vatíkaninu var stofnað.
- 27. júní - Búrgúndstríðin: Karl djarfi hörfaði frá borginni Neuss sem hann hafði setið um í 1 mánuði þegar nýjar hersveitir Heilaga rómverska ríkisins komu þangað.
- 4. júlí - Búrgúndstríðin: Játvarður 4. Englandskonungur kom Calais til stuðnings Hertogadæminu Búrgúnd gegn Frakklandi.
- 9. september - Köln hlaut sérstaka borgarstöðu og sjálfstæði innan Heilaga rómverska ríkisins.
- 13. október - Sviss: Kantónan Bern réðst inn í kantónuna Vaud.
- 13. nóvember - Svissnesku sambandsríkin báru sigurorð af Hertogadæminu Savoja í orrustu við Valais.
- 17. nóvember - Emírinn af Granada gerði friðarsamning við Kastilíu-León.
- 2. desember - Umsátur Portúgala um kastalann í Burgos endaði.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 6. mars - Michelangelo Buonarroti, ítalskur listamaður (d. 1564).
- Gedun Gyatso, 2. Dalaí Lama.