London Stadium
Útlit
(Endurbeint frá Ólympíuleikvangurinn (London))
London Stadium (áður Ólympíuleikvangurinn í London) er stór íþróttaleikvangur í Ólympíugarðinum í Stratford, London á Englandi. Hann var reistur sem aðalleikvangur fyrir Sumarólympíuleikana 2012 og Ólympíuleika fatlaðra 2012. Hann tekur 60-66.000 manns í sæti og er því þriðji stærsti íþróttaleikvangur Bretlands, á eftir Wembley Stadium og Twickenham Stadium. Um 80.000 komast á tónleika á vellinum.
Knattspyrnufélagið West Ham United er nú helsti leigjandi vallarins og notar hann sem heimavöll sinn.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Ólympíuleikvangnum í London.