Óðmenn - Spilltur heimur
Útlit
Spilltur heimur | |
---|---|
SG - 546 | |
Flytjandi | Óðmenn |
Gefin út | 1970 |
Stefna | Dægurlög |
Útgefandi | SG - hljómplötur |
Stjórn | Derek Wadsworth |
Hljóðdæmi | |
Óðmenn er 45 snúninga hljómplata gefin út af SG - hljómplötum árið 1970. Á henni flytja Óðmenn tvö lög. Hljóðritun fór fram í Olympic Sound Studios í London. Tæknimaður, George Chris. Umsjón með hljóðritun (producer), Derek Wadsworth. Ljósmynd á umslagi, Sigurgeir Sigurjónsson.
Lagalisti
[breyta | breyta frumkóða]- Spilltur heimur - Lag - texti: Jóhann Jóhannsson
- Komdu heim - Lag - texti: Jóhann Jóhannsson
Spilltur heimur
[breyta | breyta frumkóða]- Við lifum öll í spilltum heimi', sem gefur engum grið, þar sem
- samvizka er engin til og lítil von um frið, þar sem tortryggni og
- sjálfselska sér eiga engin mörk, þar sem jafnrétti og bræðralag eru
- orð á hvítri örk.
- ,,Bísness"-menn þeir vilja stríð svo seljist þeirra vopn, af þeirra
- völdum er heimurinn sem skíðlogandi ofn, og saklaust fólk fyrir
- þeirra náð er myrt eða svelt í hel, en hvaða máli skiptir það
- meðan okkur líður vel.
- Við Íslendingar erum þjóð, sem þolir ekki blóð, látum hundraðkall
- í sjóð og teljum okkur góð, og allar þjóðir eru eins — þær hugsa
- bara um sig, og sömu sögu er hægt að segja bæði um þig og mig.
- Því þetta er spilltur heimur, spilltur heimur, já, þetta er spilltur
- heimur, spilltur heimur.
Textabrot af bakhlið plötuumslags
[breyta | breyta frumkóða]Hljómplata þessi er að mörgu leyti einstök í sinni röð. Fyrst er að geta þeirra er leika og syngja á henni, þeirra Óðmanna, Jóhanns Jóhannssonar, sem leikur á bassagítar, Finns Stefánssonar, sem leikur á gítar, og Ólafs Garðarssonar, sem leikur á trommur. Þó að þeir félagar hafi ekki verið mikið í sviðsljósinu undanfarna mánuði, þá hefur leikur þeirra og söngur engu að síður vakið slíka athygli, að það er talið með því allra bezta af þessu tagi á Íslandi. Hljóðritun plötunnar fór fram í einu fullkomnasta hljóðritunar-,,stúdíói" í London og er þetta í fyrsta skipti, sem íslenzk hljómsveit fer utan til að hljóðrita tveggja laga plötu. Þá ber þess jafnframt að geta, að hér er um stereo-hljóðritun að ræða, sem er algjör nýjung á íslenzkri tveggja laga plötu. Umsjón með hljóðritun hafði ungur brezkur tónlistarmaður, Derek Wadsworth, sem m.a. er kunnur fyrir hljóðfæraleik og hljómsveitarstjórn í söngleiknum „Hair", sem um þessar mundir er sýndur í London.
Ýmislegt fleira mætti segja um þessa einstæðu hljómplötu, en nú skal staðar numið, því platan sjálf, tónlist Óðmanna, segir sannast sagna allt sem segja þarf. |
||