Fara í innihald

Ætihvönn

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ætihvönn

Vísindaleg flokkun
Ríki: Jurtaríki (Plantae)
Fylking: Dulfrævingar (Magnoliophyta)
Flokkur: Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ættbálkur: Sveipjurtabálkur (Apiales)
Ætt: Sveipjurtaætt (Apiaceae)
Ættkvísl: Hvönn (Angelica)
Tegund:
A. archangelica

Tvínefni
Angelica archangelica
L.
Ætihvönn við Skógafoss.
Hvönn við Mosfell, Apavatni um 1900.

Ætihvönn, erkihvönn, englahvönn, englarót, höfuðhvönn eða einfaldlega hvönn[1] (fræðiheiti: Angelica archangelica eða Archangelica officinalis) er tvíær jurt af sveipjurtaætt. Fyrra árið vaxa aðeins blöð, en seinna árið nær holur stofninn allt að tveggja metra hæð. Laufin eru samansett úr fjölmörgum litlum smáblöðum sem eru gróftennt og hárlaus. Ætihvönnin blómstrar oftast í júlí og ágúst, blómin eru lítil og fjölmörg, gulleit eða grænleit, og standa mörg saman í samsettum sveipum sem eru 10-20 sm í þvermál. Hver sveipur er gerður af mörgum smásveipum sem hver um sig er 1,5-2,5 sm í þvermál. Blaðslíðrin eru mjög breið og útblásin og hylja allan sveipinn meðan hann er að þroskast. Ætihvönn finnst víða um land á Íslandi þar sem vatn er nægilegt enda vex hún aðeins í rökum næringarríkum jarðvegi, helst nálægt ám eða vatnsbólum.[2] Á láglendi verður hún oft einráð ef beit heldur ekki aftur af henni. Þetta sést vel í gömlum túnum í hinum yfirgefnu byggðum á Hornströndum, þar sem hún leggur undir sig túnin og myndar þéttar, 2 metra háar breiður svo landið verður torvelt yfirferðar.[3]

Ætihvönn vex villt, fyrir utan á Íslandi, t.d. í Rússlandi, Finnlandi, Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Grænlandi, Færeyjum aðallega í norðurhluta landanna.

Landnámsmenn á Íslandi þekktu vel til ætihvanna enda var hún mikilvæg matjurt á Norðurlöndum og Bretlandseyjum og lækningamátturinn var vel þekktur meðal norrænna manna. Hvannir koma nokkrum sinnum fyrir í íslenskum miðaldaritum. Í Grágás eru til dæmis ákvæði um viðurlög við stuldi á hvönn, útlegð eða sekt ef teknar voru hvannir í annarra garði.[4]

Um hvönnina í Látrabjargi

[breyta | breyta frumkóða]

Eggert Ólafsson skrifar um hvönnina í Látrabjargi og segir:

Í Látrabjargi eru jurtastóð, því að jarðvegur er þar rakur og frjór á skeiðum og í sprungum, en sólarhitinn knýr plönturnar til mikils vaxtar. Hvönn vex þar alls staðar og verður þar sums staðar svo stórvaxin, að fullorðinn karlmaður getur stungið handleggnum inn í stöngulholið. Hvönn er árlega skorin til heimilisnota þar úr nágrenninu. Til sönnunar því að jurt þessi hafi verið notuð mikið fyrr á tímum og verið eftirsótt, er gjafabréf á skinni í eign Sauðlauksdalskirkju, þar sem kirkjunni er gefinn árlegur hvannskurður í Látrabjargi, svo mikið sem 6 menn skera (vafalaust) á einum degi og einn maður á sex dögum.

Notkun ætihvannar

[breyta | breyta frumkóða]

Ætihvönn hefur örvandi áhrif á ónæmiskerfið og er mjög virk gegn veirum. Breytileiki í virkni plantna eftir vaxtarstöðum hefur verið rannsakaður. Rannsóknir sýna að hvannalauf hafa aðra virkni en fræ. Einnig hefur virkni efna úr íslenskum lækningajurtum verið borin saman við erlendar náttúruvörur úr sams konar jurtum sem vaxa á suðlægari slóðum. Virkni íslensku jurtanna hefur reynst mun meiri. Þetta staðfestir tiltrú manna á íslenskum lækningajurtum frá víkingatímanum.[5][6]

Það er tilvalið að nota þurrkuð fræ og rætur ætihvannar sem krydd á matarrétti eða í jurtaseiði. Séra Björn Halldórssson í Sauðlauksdal nefndi hvernig gott væri að nýta sér ætihvönnina eins og þeir gera í Noregi:[7]

„Árið 1740, þegar hallæri var í Noregi, þurrkuðu bændur þessa urt (hvönn) með blöðum og rótum, og möldu og suðu saman við annað mjöl og átu so. Njólinn, fræið og rótin er það sem helst má gjöra brauð af saman við annað mjöl.“

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ Orðið „ætihvönn“ á Orðabanka íslenskrar málstöðvar úr orðasafninu „Plöntuheiti“:íslenska: „ætihvönn“, „erkihvönn“, „hvönn“.
    Orðið „ætihvönn“ á Orðabanka íslenskrar málstöðvar úr orðasafninu „Matarorð úr jurtaríkinu“:íslenska: „ætihvönn“, „erkihvönn“, „hvönn“.
  2. ↑ Ætihvönn (Angelica archangelica). Skógræktarfélag Íslands
  3. ↑ Ætihvönn (Angelica archangelica)[óvirkur tengill] Náttúrufræðistofnun]
  4. ↑ Sigmundur Guðbjarnason (27.4.2023). „Er ætihvönn góð sem grasalyf og ef svo er, hvernig er hún þá matreidd?“. Vísindavefurinn.
  5. ↑ „Upplýsingar: Veiruvirkni íslenskrar ætihvannar“. Afritað af uppruna á 8 ágúst 2020. Sótt 18 febrúar 2025.
  6. ↑ Sigmundur Guðbjarnason (3.10.2001). „Er ætihvönn góð sem grasalyf og ef svo er, hvernig er hún þá matreidd?“. Vísindavefurinn.
  7. ↑ Ingólfur Guðnason (15.október 2009). „Er í lagi að borða hvannarfræ beint af plöntunni?“. Vísindavefurinn. Sótt 5. ágúst 2026.
  Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.