Árbók Þingeyinga
Útlit
Árbók Þingeyinga er útbreiddasta átthagarit á Íslandi og hefur verið gefið út árlega síðan 1958. Í bókinni eru birtar greinar á borð við sögur, ljóð og annálar. Hún er heimild um líf og störf fólks í Þingeyjarsýslum.
Upphafsmaður bókarinnar var Jóhann Skaptason, þáverandi sýslumaður Þingeyinga. Þingeyjasýslunar báðar og Húsavík stóðu að útgáfu hennar.
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]- Árbók Þingeyinga Geymt 27 apríl 2016 í Wayback Machine Safnahúsið á Húsavík