Virknihópur
Útlit
Virknihópur í lífrænni efnafræði er sá hluti efnasambands sem orsakar þau efnahvörf sem einkenna efnasambandið. Ákveðinn virknihópur veldur alltaf sama (eða mjög svipuðu) efnahvarfi. Því er hægt að reikna út hvernig efni mun haga sér.
Til eru margar gerðir af virknihópum. Hér eru dæmi um nokkra sem innihalda aðeins kolefni og vetni:
Efnaflokkur | Virknihópur | Efnaformúla | Uppbygging | Forskeyti | Viðskeyti | Dæmi um efni |
---|---|---|---|---|---|---|
Alkan | Alkýl | R(CH2)nH | alkýl- | -an | Etan | |
Alken | Alkenýl | R2C=CR2 | alkenýl- | -en | Etýlen
(Eten) | |
Alkýn | Alkýnýl | RC≡CR' | R−C≡C−R' | alkýnýl- | -ýn | H−C≡C−H Asetýlen
(Etýn) |
Bensenafleiður | Fenýl | RC6H5 RPh | fenýl- | -bensen | Kúmen
(Ísóprópýlbensen) |