Tóftir (Flateyjardalur)
Útlit
Tóftir voru kot á Flateyjardal sem getið er um í Finnboga sögu ramma, en þar bjuggu hjónin Gestur og Syrpa, sem fundu útburðinn sem í fyrstu hét Urðarköttur en nefndist seinna Finnbogi, og ólu hann upp þar á kotinu.[1] Ekki er vitað hvar Tóftir voru staðsettar.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Finnboga saga ramma“. www.snerpa.is. 3. og 9. kafli. Sótt 15. september 2023.