Tækniháskólinn í Varsjá
Tækniháskólinn í Varsjá (pólska: Politechnika Warszawska) eða WUT, er ein af leiðandi tæknistofnunum Póllands og ein af þeim stærstu í Mið-Evrópu. Við háskólann starfa 2.453 kennara þar af 357 prófessora. Háskólinn telur um 36.156 nemendur. Á háskólastigi eru um 25 þúsund nemendur í fullu námi og um 8 þúsund nemur í hlutanámi. Í doktorsnámi eru 1 þúsund nemendur, og í framhaldsháskólanámi eru um 2.500 nemendur.
Háskólinn er með 19 deildir sem ná til flestra sviða vísinda og tækni. Allar eru þær í Varsjá, utan eina í borginni Plock. Alls eru um 5.000 nemendur útskrifaðir árlega. Margir af forystumönnum fyrirtækja og stofnana Póllands eru menntaðir frá háskólanum.
Uppruna háskólans má rekja til ársins 1826 þegar verkfræðimenntun hófst við Tæknistofnunina í Varsjá. WUT er öflugur rannsóknarháskóli. Árið 2012 voru 498 rannsóknarverkefni við háskólann. Þá er WUT mjög virkur þátttakandi í alþjóðasamstarfi. Árið 2012 var WUT með 495 samninga um alþjóðasamstarf.
Prófessor Jan Szmidt, er rektor Tækniháskólans í Varsjá.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Fyrirmynd greinarinnar var „Warsaw University of Technology“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 13. september 2012.
- Opinber vefur WUT – á pólsku
- Opinber vefur WUT – á ensku Geymt 18 október 2010 í Wayback Machine