The Devil's dictionary
Útlit
The Devil's dictionary eða Orðabók Andskotans (í þýðingu Hallbergs Hallmundssonar) er ritverk og orðabók eftir Ambrose Bierce og er samantekt orðútskýringa sem hann gaf út í vikublaðinu Wasp 1881-1906. Bókin kom fyrst út sem „Orðskviðir hundingjans“ 1906 en hlaut síðar sitt þekkta heiti. Bækur í svipuðum stíl hafa verið gefnar út, t.d. The Computer Contradictionary. Mikil launhæðni (og hreinskilni jafnvel) er fólgin í orðaútskýringunum og þykja þær almennt hnyttnar.
Dæmi um orðútskýringar:
- Einsamall; í slæmum félagsskap.
- Ræningi; hreinskilinn athafnamaður.
- Fallbyssa; tæki notað til leiðréttinga á landamæravillum.
Auk skilgreininga er að finna ljóð og mistúlkaðar goðsagnir.