Brjóstagras
Útlit
(Endurbeint frá Thalictrum alpinum)
Brjóstagras | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Thalictrum alpinum
| ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Thalictrum alpinum |
Brjóstagras (fræðiheiti: Thalictrum alpinum) er fjölært blóm af sóleyjaætt sem vex í móum, hlíðum og grasbölum. Það ber blóm í gisnum klösum og blómhlífarblöðin eru ljós-fjólublá. Í hverju blómi eru 8 fræflar sem hanga út úr blóminu. Hver frjóhnappur er í fyrstu gulur en verða þeir svo brúnir. Brjóstagras myndar hnetur sem sitja á slútandi stilk. Blómið er í heild um 6 til 20 cm hátt.
Samlífi
[breyta | breyta frumkóða]Á Íslandi vex sveppurinn grasmúrgróungur (Pleospora herbarum) á dauðum vefjum ýmissa plöntutegunda,[1] meðal annars á brjóstagrasi.[2]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Helgi Hallgrímsson. 2010. Sveppabókin. Skrudda, Reykjavík. ISBN 978-9979-655-71-8
- ↑ Helgi Hallgrímsson & Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir (2004). Íslenskt sveppatal I - smásveppir. Geymt 17 október 2020 í Wayback Machine Fjölrit Náttúrufræðistofnunar. Náttúrufræðistofnun Íslands. ISSN 1027-832X
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Brjóstagras.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Thalictrum alpinum.