Fara í innihald

Tengiferill

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Tengiferill (rauður) á milli beinnar línu (blár) og hrings (grænn).
Tengiferill myndast. Í hverju skrefi verður til nýr hringur með minni radíus en í skrefinu á undan. Hver nýr hringur er snertandi (e. tangent) á forvera sinn. Tengiferillinn er búinn til úr öllum hringjunum.

Tengiferill, sem einnig kallast klótóíða, er ferill með krappa sem breytist línulega með lengd sinni. Tengiferlar eru notaðir í vegagerð við ákvörðun á láréttri legu vega. Til eru nokkur afbrigði af tengiferlum: tengibogi, vendibogi, toppbogi og egglína.[1]

Í upphafi stefnubreytingar er radíus tengiferils óendanlegur, og í lok stefnubreytingar er tengiferillinn með sama radíus og næsti hringferill sem hann tengist við. Tengiferillinn myndar þannig aflíðandi stefnubreytingu milli beinnar línu og hrings.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. „Íðorðabankinn“. idordabanki.arnastofnun.is. Sótt 11. desember 2022.