Tampa
Útlit
(Endurbeint frá Tampa (Flórída))
Tampa er borg í Hillsborough County, Flórída, í Bandaríkjunum. Borgin er á vesturströnd fylkisins og er í Tampa-flóa. Íbúar eru um 385.000 (2017). Borgin er hluti af Tampa-St. Petersburg-Clearwater stórborgarsvæðinu þar sem búa rúmar 3 milljónir. Hún er sú þriðja stærsta á eftir Jacksonville og Miami. Uppruna borgarinnar má rekja til herstöðvar sem hét Tampa town á miðri 19. öld.
Meðal íþróttaliða borgarinnar eru NFL-liðið Tampa Bay Buccaneers og NHL-liðið Tampa Bay Lightning. Skemmtigarðurinn Bush Gardens er í nágrenninu.
Tampaflugvöllur er alþjóðaflugvöllur sem þjónar borginni.
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Tampa.
- Fyrirmynd greinarinnar var „Tampa, Florida“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 13. mars. 2019.