Sveitablöð
Inngangur
[breyta | breyta frumkóða]Sveitablöð (eða sveitarblöð) er heiti yfir blöð eða tímarit sem voru algeng á Íslandi á 19. öld og fram á 20. öld. Þetta voru handskrifuð blöð sem gengu á milli bæja. Oft voru það lestrarfélög eða ungmennafélög á svæðinu sem stóðu fyrir útgáfunni. Megintilgangurinn virðist hafa verið að efla félagslega virkni, skemmta og fræða lesendur og í sumum tilvikum að standa að einhvers konar umræðum um þau málefni sem helst brunnu á sveitungunum.[1]
Tegundir
[breyta | breyta frumkóða]Hrafnkell Lárusson hefur skipt sveitablöðunum í þrjá flokka. Í fyrsta flokknum eru sveitablöð vettvangur tjáskipta. Áhersla var lögð á að fólk tæki þátt í blaðaskrifum og skoðanaskiptum, auk þess að „auka félagslega virkni“ lesenda. Í öðrum flokki eru blöð gefin út af félagi. Slík blöð áttu að þjóna hagsmunum félagsins en oft voru þó almenn málefni tekin fyrir. Í þriðja flokknum eru blöð sem birtu nær eingöngu einhvers konar afþreyingarefni og gerðu ekki ráð fyrir þáttöku lesanda í skrifum.[2]
Útbreiðsla
[breyta | breyta frumkóða]Það virðist vera nokkuð misjafnt eftir landssvæðum hvað hefur varðveist af sveitablöðum. Erfitt er að segja til um það hvort það í beinu samhengi við hversu mikið var gefið út af slíkum blöðum á hverju svæði fyrir sig en gæti þó verið vísbending um það.[3]
Mörg skjalasöfn á Íslandi geyma sveitablöð. Hér eru dæmi um nokkur:
Heiti sveitablaðs | Skjalasafn | Útgefandi | Útgáfuár | Hlekkur |
---|---|---|---|---|
Stígandi. Sveitablað í Blönduhlíð. | Héraðsskjalasafn Skagfirðinga | 1919-1925 | http://atom.skagafjordur.is/index.php/stigandi-sveitabla[óvirkur tengill] | |
Stígandi. Sveitablað í Hólahreppi. | Héraðsskjalasafn Skagfirðinga | 1890-1891 | http://atom.skagafjordur.is/index.php/sveitabla-i-stigandi-1890-1891 Geymt 24 október 2020 í Wayback Machine | |
Viðar. Sveitablað í Víkurhreppi | Héraðsskjalasafn Skagfirðinga | http://atom.skagafjordur.is/index.php/vi-ar-sveitabla[óvirkur tengill] | ||
Fjallfari. Sveitablað í Sauðárhreppi | Héraðsskjalasafn Skagfirðinga | http://atom.skagafjordur.is/index.php/sveitablo Geymt 8 ágúst 2020 í Wayback Machine | ||
Gaman og alvara | Héraðsskjalasafn Skagfirðinga | http://atom.skagafjordur.is/index.php/stefan-jonsson-skjalasafn[óvirkur tengill] | ||
Hjarandi. Hjaltastöðum | Héraðsskjalasafn Skagfirðinga | http://atom.skagafjordur.is/index.php/hjarandi Geymt 28 nóvember 2020 í Wayback Machine | ||
Máni | Héraðsskjalasafn Skagfirðinga | Málfundarfélagið Von | http://atom.skagafjordur.is/index.php/malfundafelagi-von-i-stiflu-sveitabla-i-mani Geymt 27 október 2020 í Wayback Machine | |
Smári | Héraðsskjalasafn Skagfirðinga | http://atom.skagafjordur.is/index.php/sveitablo-4[óvirkur tengill] | ||
Viljinn | Héraðsskjalasafn Skagfirðinga | 1898-1922 | http://atom.skagafjordur.is/index.php/sveitablo-3 Geymt 2 desember 2020 í Wayback Machine | |
Ökuþór | Héraðsskjalasafn Vestur-Húnavatnssýslu | Málfundafélag Hvammstanga | 1923-1927 | http://atom.hunathing.is/index.php/oku-or-bok-1 Geymt 26 september 2020 í Wayback Machine |
Ökuþór | Héraðsskjalasafn Vestur-Húnavatnssýslu | Málfundafélag Hvammstanga | 1931-1933 | http://atom.hunathing.is/index.php/oku-or-bok-2 Geymt 24 september 2020 í Wayback Machine |
Þröstur | Héraðsskjalasafn Vestur-Húnavatnssýslu | Sjálfstæðisfélagið Fjölnir | 1937-1942 | http://atom.hunathing.is/index.php/rostur Geymt 26 september 2020 í Wayback Machine |
Ingimundur gamli. Sveitablað í Áshreppi | Héraðsskjalasafn Austur-Húnavatnssýslu | Ungmennafélag Vatnsdælings | 1916-1951 | |
Ásar. Sveitablað í Torfalækjarhreppi | Héraðsskjalasafn Austur-Húnavatnssýslu | Ungmennafélagið Framtíðin | 1919-1924 | |
Víkingur. Sveitablað í Torfalækjarhreppi | Héraðsskjalasafn Austur-Húnavatnssýslu | 1919-1930 | ||
Víkingur. Sveitablað í Vindhælishreppi | Héraðsskjalasafn Austur- Húnavatnssýslu | 1934-1936 | ||
Vorboðinn. Sveitablað í Engihlíðarhreppi | Héraðsskjalasafn Austur- Húnavatnssýslu | 1916-1925 | ||
Sveitin. Sveitablað í Svínavatnshreppi | Héraðsskjalasafn Austur- Húnavatnssýslu | 1897-1911
1917-1921 |
||
Bragi. Sveitablað í Svínavatnshreppi | Héraðsskjalasafn Austur- Húnavatnssýslu | |||
Dagsbrún. Sveitablað í Svínavatnshreppi | Héraðsskjalasafn Austur- Húnavatnssýslu |
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Hrafnkell Lárusson: "Sveitarblöðin og erlend áhrif á íslenskt samfélagið", Ráðstefnurit. Sjöunda landsbyggðarráðstefna Sagnfræðingafélags Íslands og Félags þjóðfræðinga á Íslandi. Héraðsnefnd Múlasýslna og Sagnfræðingafélags Íslands, Egilsstöðum, 2006. Bls. 75-81.
- ↑ Hrafnkell Lárusson: Í óræðri samtíð með óvissa framtíð. Íslensk sveitarblöð og samfélagsbreytingar um aldamótin 1900. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands, Reykjavík, 2006. Bls. 21-23.
- ↑ Hrafnkell Lárusson: Í óræðri samtíð með óvissa framtíð. Íslensk sveitarblöð og samfélagsbreytingar um aldamótin 1900. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands, Reykjavík, 2006. Bls. 25-27.