Stofn (málfræði)
Útlit
(Endurbeint frá Stofn sagnorðs)
- Fyrir aðrar merkingar orðsins má sjá aðgreiningarsíðuna.
Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu stofn.
Stofn kallast sá hluti orðs sem ekki breytist í beygingu.
Stofn nafnorða
[breyta | breyta frumkóða]Stofn nafnorða má finna með því að sjá hvaða hluti orðsins er eins í öllum föllum. (Stofn sterka nafnorða finnst í þolfalli eintölu) Stofn veikra nafnorða finnst með því að taka sérhljóðann frá nf et
- stofn orðsins ‚hestur‘ er ‚hest‘
- stofn orðsins ‚kona‘ er ‚kon‘
- stofn orðsins ‚tunna er ,tunn‘
Hjá sumum nafnorðum er -r stofnlægt í endingu orðs (t.d. veður > veðri).
Stofn lýsingarorða
[breyta | breyta frumkóða]Stofn lýsingarorða má finna með því að setja orðið í kvenkyn nefnifall eintölu.[1]
- (hann er) stór → (hún er) stór
- (hann er) dapur → (hún er) döpur
- (hann er) ungur → (hún er) ung
Stofn sagnorða
[breyta | breyta frumkóða]Algengast er að stofn sagnorða sé fundinn með að fjarlægja -a[2] eða -ja af nafnhættinum, og er það sú aðferð sem kennd er í grunnskólum.[3]
Sumir líta hinsvegar á að veikar sagnir sem beygjast eftir fjórða flokki haldi a-inu þar sem það helst að mestu við beygingu, og stofn orðins að baka sé þar með baka.[4][5]
Dæmi
[breyta | breyta frumkóða]- Stofn sagnorðsins „kaupa“ er kaup
- Stofn sagnorðsins „fara“ er far
- Stofn sagnorðsins „taka“ er tak
- Stofn sagnorðsins „vera“ er ver
- Stofn sagnorðsins „velja“ er vel
- Stofn sagnorðsins „elska“ er elsk (eða elska)
- Stofn sagnorðsins „baka“ er bak (eða baka)
- Stofn sagnorðsins „kalla“ er kall (eða kalla)
- Stofn sagnorðsins „skrifa“ er skrif (eða skrifa)
- Stofn sagnorðsins „hrópa“ er hróp (eða hrópa)
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Íslenskukennsla[óvirkur tengill] við Hólabrekkuskóla
- ↑ „Málfarsbankinn“. malfar.arnastofnun.is. Sótt 14. ágúst 2020.
- ↑ Svanhildur Kr. Sverrisdóttir. „Finnbjörg“ (PDF).
- ↑ „Hvernig finn ég stofn sagnorða?“. Vísindavefurinn. Sótt 14. ágúst 2020.
- ↑ Esther Erla Jónsdóttir. „Tak sæng þína og gakk“ (PDF).