Stilbít
Útlit
Stilbít er margbreytilegt að útliti.
Lýsing
[breyta | breyta frumkóða]Stilbít myndar frekar plötulaga kristala er vaxa út í horn til enda. Það kemur fyrir sem þyrping af jafnhliða sexhyrndum kristölum. Stilbít er mjólkurhvítt en líka glær,hálfglær og líka lituð afbrigði sem geta verið rauðbrún eða grænlit. Það er bæði með glergljáa og skelplötugljáa. Eru 1-2 cm langir en geta verið allt að 5-10 cm á lengd.
- Efnasamsetning: NaCa2Al5Si13O36 • 14H2O
- Kristalgerð: mónóklín, rombísk
- Harka: 3½-4
- Eðlisþyngd: 2,12-2,21
- Kleyfni: góð
Útbreiðsla
[breyta | breyta frumkóða]Algengust zeólíta. Finnst í holufylltu basalti. Á Íslandi er það einnig að finna í þóleiíti neðarlega í blágrýtisfjöllunum á Austfjörðum.
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]- Kristján Sæmundsson og Einar Gunnlaugsson (1999) Íslenska steinabókin. ISBN 9979-3-1856-2