Halít
Útlit
(Endurbeint frá Steinsalt)
Halít eða steinsalt er natrínklóríð í formi steindar; aðaleinkenni er saltbragðið.
Lýsing
[breyta | breyta frumkóða]Hvítleitt eða grátt. Teningslaga kristallar, tvíburavöxtur finnst stundum. Leysist auðveldlega upp í vatni og er salt á bragðið.
- Efnasamsetning: NaCl
- Kristalgerð: kúbísk
- Harka: 2
- Eðlisþyngd: 2,1-2,2
- Kleyfni: góð á þrjá vegu
Útbreiðsla
[breyta | breyta frumkóða]Er algengt víða í náttúrunni þar sem sjór eða salt vatn gufar upp. Gráleitar útfellingar í móbergi þar sem vatn hefur leyst út úr berginu. Á Íslandi finnst halít t.d. í Mýrdal, Surtsey og Eldfelli. Stærsta útfellingin er úr jarðsjó á Reykjanesi.
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]- Kristján Sæmundsson og Einar Gunnlaugsson (1999) Íslenska steinabókin. ISBN 9979-3-1856-2