Stafræn endurgerð
Útlit
Stafræn endurgerð nefnist sú aðgerð þegar tiltekinn hlutur, mynd, hljóð, skjal eða merki (oftast flaummerki) er endurskapaður með því að taka úrtök eða sýnishorn og mynda af þeim stafrænt afrit. Þessum upplýsingum er svo hægt að miðla hratt og örugglega í gegnum internetið.
Ljóslestur er tækni sem er stundum notuð við stafræna endurgerð á prentuðum texta. Þá notast tölvur við sérstakan hugbúnað til þess að greina mynstur stafa og endurskapa textann stafrænt en ekki bara mynd af honum.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Stafrænni endurgerð.
- Tímarit.is tímarit.is - þar sem mikið magn útgefinna íslenskra tímarita hafa verið stafrænt endurgerð af Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni
- Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn
- Rafbókavefur þar sem markmiðið er að stafrænt endurgera bókmenntaverk sem komin eru úr höfundarétti
- Europeana
- Digital Public Library of America