Staðará (Steingrímsfirði)
Staðará í Steingrímsfirði er á í Strandasýslu á Vestfjörðum. Hún rennur frá Steingrímsfjarðarheiði í gegnum Staðardal og út í Steingrímsfjörð.
Staðará er dragá og í hana renna Aratunguá og Þverá. Hólasunnudalsá og Farmannsdalsá sameinast í Þverá í Farmannsdal. Í Staðará veiðist lax og bleikja. Veiðifélag Staðarár hefur verið starfandi frá 1974 og er stjórn félagsins skipuð landeigendum.[1]
Veiðitölur
[breyta | breyta frumkóða]Ár | Laxar | Bleikjur | Sjóbirtingar | Athugasemdir |
---|---|---|---|---|
1974 | 44 | |||
1975 | 100 | |||
1976 | 108 | |||
1977 | 124 | |||
1978 | 101 | |||
1979 | 95 | |||
1980 | 72 | |||
1981 | 46 | |||
1982 | 41 | |||
1983 | 26 | |||
1984 | 25 | |||
1985 | 28 | |||
1986 | 64 | |||
1987 | 40 | 584 | ||
1988 | 71 | 35 | ||
1989 | 62 | 13 | ||
1990 | 118 | 183 | ||
1991 | 82 | 385 | 1 | |
1992 | 169 | 265 | ||
1993 | 43 | 254 | ||
1994 | 26 | 163 | ||
1995 | 101 | 201 | ||
1996 | 57 | 92 | ||
1997 | 45 | 164 | ||
1998 | 29 | 288 | ||
1999 | 6 | 76 | Gljúfur lokuð | |
2000 | 14 | 297 | Gljúfur lokuð | |
2001 | 41 | 281 | Gljúfur lokuð | |
2002 | 82 | 78 | Einungis fluguveiði leyfð | |
2003 | 64 | 550 | Einungis fluguveiði leyfð | |
2004 | Einungis fluguveiði leyfð | |||
2005 | 95 | 107 | Einungis fluguveiði leyfð | |
2006 | 100 | 34 | Einungis fluguveiði leyfð | |
2007 | 46 | 44 | Einungis fluguveiði leyfð | |
2008 | 109 | 234 | Einungis fluguveiði leyfð | |
2009 | 113 | 72 | Einungis fluguveiði leyfð | |
2010 | Einungis fluguveiði leyfð | |||
2011 | Einungis fluguveiði leyfð | |||
2012 | Einungis fluguveiði leyfð | |||
2013 | Einungis fluguveiði leyfð | |||
2014 | Einungis fluguveiði leyfð |
Veiðileyfi
[breyta | breyta frumkóða]Veiðileyfum í Staðará er úthlutað til landeigenda við ánna. Landeigendur selja svo ýmist leyfin eða nota þau sjálfir. Veiðileyfaeigendur geta látið Upplýsingamiðstöðina vita af veiðileyfum sem eru til sölu eða látið Upplýsingamiðstöðina fá upplýsingar um aðila sem hafa má samband við til að spyrja um veiðileyfi til sölu.
Æskilegt er að laxi sé sleppt og sér í lagi stærri laxi. Með stærri laxi er átt við hrygnur þyngri en 3,5 kg. og hænga þyngri en 4 kg. Með þessu á að stuðla að uppbyggingu laxastofns Staðarár, minnka sveiflur í veiði og auka hlutfall stærri laxa í Staðará.
Veiðitímabilið skiptist í tvennt. Frá 8. júlí til 31. ágúst má veiða í allri ánni og drepa má lax sem veiðist. Hámarksafli á dag eru þrír laxar. Frá og með 1. september má bara veiða upp að Þverá og öllum laxi skal sleppt. Á báðum tímabilunum má einungis veiða á flugu.
Veitt er með 2 stöngum og skiptist áin í efra og neðra svæði. Veiðimenn veiða hálfan dag á hvoru svæðinu fyrir sig. Sá sem til dæmis veiðir á neðra svæðinu fyrir hádegi veiðir á efra svæðinu eftir hádegi. Til 1. september nær neðra svæðið frá ósi til og með Hýshyl í landi Hóla (neðan við Hólaskilti við veginn). Eftir 1. september er skipting svæðisins frá ósi að Þverá samkvæmt samkomulagi á milli veiðimanna.
Eigendur
[breyta | breyta frumkóða]Jarðir í Staðardal sem eiga Staðará sameiginlega eru
- Kleppustaðir
- Kirkjuból
- Aratunga
- Hólar
- Víðivellir
- Staður
- Hrófberg
- Stakkanes
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- „Staðará í Steingrímsfirði“. Sótt 19. júlí 2007.
- „Veiðimálastofnun, veiðitölur“. Sótt 26. júlí 2014.
- ↑ Um stofnun félagsins sjá „Veiðimálastjóri“. Sótt 19. júlí 2007..