Spaghettí

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Soðið spaghettí.

Spaghettí (stundum spagettí) eða hveitilengja er aflöng og þunn pastategund frá Ítalíu. Ýmsar pastamáltíðir miðast við spaghettí, t.d. spaghettíi með osti og svartum pipar eða hvítlauk og ólífuolíu eða spaghettí með tómat, kjöt eða öðrum sósum. Spaghettí er gert úr símiljumjöli og vatni.

Orðið „spaghettí“ er komið af ítalska orðinu spaghetti sem er fleirtölumynd af spaghetto sem er smækkunarorð af spago sem þýðir „þunnur strengur, seglgarn“. Þess vegna þýðir orðið spaghetti bókstaflega „litlir strengir“. Á íslensku hefur spaghettí stundum verið kallað englabellir eða pottormar í hálfkæringi.

  Þessi matar eða drykkjargrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.