Skjávarp
Skjávarp er stafræn upptaka af því sem gerist á tölvuskjá, gjarnan með tali, þar sem fyrirlesari/kennari lýsir því sem gerist. Á meðan skjámynd (e. screenshot) er mynd af skjá tölvunotanda þá er skjávarp kvikmynd af því sem tölvunotandi sér á skjánum. Enska orðið (e. screencast) er frá árinu 2004 en hugbúnaður til stafrænnar upptöku af tölvuskjám hefur þó verið framleiddur allt frá 1993, t.d. Lotus ScreenCam. Í byrjun var slíkur búnaður þannig að erfitt var lagfæra upptöku eftir á og upptakan var í afar stórum skrám.
Notkun
[breyta | breyta frumkóða]Skjávarp er oft notað til sýnikennslu í hvernig ýmiss konar tölvuhugbúnaður virkar og til að kenna námsefni í fjarnámi og við aðstæður, þar sem nemandinn er hvorki á sama stað né sama tíma og kennarinn/fyrirlesarinn.
Notkun á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]Skjávarp hefur verið notað frá árinu 2004 í ákveðnum námskeiðum í upplýsingatækni við Kennaraháskóla Íslands og nemendur í upplýsingatækni læra að búa til skjávarp. Í Háskólanum í Reykjavík tíðkast að taka upp fyrirlestra með skjávarpshugbúnaði (Camtasia) og geta nemendur sem skráðir eru í námskeið hlýtt á netupptökur af fyrirlestri eftir að hann hefur verið haldinn.
Dæmi um íslenskt skjávarp
[breyta | breyta frumkóða]- Að setja inn grein á Wikipedia Geymt 12 mars 2007 í Wayback Machine um Grasagarð Reykjavíkur
- Kynning á Wikimapia Geymt 27 september 2007 í Wayback Machine
Heimildir og ítarefni
[breyta | breyta frumkóða]Fyrirmynd greinarinnar var „Screencast“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 2. október 2006.