S.A.S. tríóið með rokkhljómsveit Árna Ísleifs
Útlit
(Endurbeint frá ST.PL.2)
S.A.S. tríóið með rokkhljómsveit Árna Ísleifs | |
---|---|
Stjörnuhljómplata 2 | |
Flytjandi | S.A.S. tríóið, rokkhljómsveit Árna Ísleifs |
Gefin út | 1959 |
Stefna | Dægurlög |
Útgefandi | Íslenzkir Tónar |
S.A.S. tríóið með rokkhljómsveit Árna Ísleifs er 45-snúninga hljómplata gefin út af Íslenzkum Tónum árið 1959 undir merkinu Stjörnuhljómplötur. Á henni syngur S.A.S. tríóið tvö lög með rokkhljómsveit Árna Ísleifs. Tríóið skipuðu Stefán Jónsson, Ásbjörn Egilsson og Sigurður Elísson. Hljómsveitina skipuðu auk Árna Pétur Urbancic, Karl Lillendahl, Reynir Jónsson og Bragi Einarsson á saxófón. Platan er hljóðrituð í mono. Upptaka: Ríkisútvarpið. Umslag: Amatörverslunin ljósmyndastofa. Pressun: AS Nera í Osló.
Lagalisti
[breyta | breyta frumkóða]- Allt í lagi - Lag - texti: Bonura - Jón Sigurðsson ⓘ
- Jói Jóns - Lag - texti: Leiber - Jón Sigurðsson