Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík
Stúdentafélag HR (SFHR) er nemendafélag við Háskólann í Reykjavík.
Um félagið
[breyta | breyta frumkóða]Stúdentafélagið (SFHR) er hagsmunafélag stúdenta við Háskólann í Reykjavík. Félaginu ber að standa vörð um hagsmuni félagsmanna sinna sem og að auka einingu meðal nemenda skólans. Allir nemendur Háskólans í Reykjavík eru meðlimir í SFHR og eru félagsgjöld engin.
Stjórn SFHR er skipuð sjö aðilum sem sitja eitt skólaár í senn og fara kosningar fram á vorönn. Starfsemi félagsins gengur að miklu leyti út á að veita skólanum aðhald hvað varðar gæði kennslunnar og aðstöðu nemenda til náms. Félagið er því í góðu sambandi við stjórnendur skólans og er oft kallað eftir áliti stjórnar SFHR varðandi úrlausn ýmissa mála. Stjórn SFHR situr í ýmsum nefndum og ráðum Háskólans í Reykjavík, til dæmis námsráð, siðanefnd, jafnréttisnefnd og fleira. Forseti situr í framkvæmdarráði skólans sem er æðsta vald HR fyrir utan stjórnarfundi eigenda.
Hver deild við skólann hefur sitt hagsmuna- og nemendafélag sem stendur vörð um hagsmuni félagsmanna sinna. Formaður hvers félags situr í fulltrúaráði SFHR og hefur þannig áhrif á stefnur og verkefni SFHR.
Aðilar að SFHR eru sjálfkrafa aðilar að Byggingarfélagi námsmanna (BN) og Bandalagi íslenskra námsmanna (BÍSN). BN sér um byggingu og viðhald námsmannaíbúða sem standa nemendum HR til boða á nemendagörðum sem staðsettir eru víðsvegar um borgina. BÍSN, sem stendur fyrir Bandalag Íslenskra Sérskólanema, er námsmannahreyfing sem gætir hagsmuna nemenda aðildarskóla sinna og hefur SFHR verið í forystuhlutverki samtakanna. Einnig eru fulltrúar SFHR í fulltrúaráði Landssamtaka Íslenskra Stúdenta (LÍS).
Skrifstofa Stúdentafélagsins er staðsett í HR á 2. hæð í Mars (M205). Heimasíða félagsins er https://sfhr.is/
Forsetar SFHR síðustu ár
[breyta | breyta frumkóða]Nafn | Tímabil |
---|---|
Jakob Daníelsson | 2023-2024 |
Jón Goði Ingvarsson | 2022-2023 |
Alexander Mar | 2021-2022 |
Arna Rut Arnarsdóttir | 2020-2021 |
Eygló María Björnsdóttir | 2019-2020 |
Eygló María Björnsdóttir | 2018-2019 |
Rebekka Rún Jóhannesdóttir | 2016-2017 |
Elísabet Erlendsdóttir | 2015-2016 |
*Listinn er ekki með öllum forsetum heldur þeim sem skráð eru í ársskýrslur félagsins síðustu ár.