Sýrena
Útlit
(Endurbeint frá Sýrenur)
Sýrena (fræðiheiti: Syringa) er ættkvísl blómstrandi runna og trjáa af smjörviðarætt. Að minnsta kosti 12 tegundir eru þekktar en fræðimenn eru ekki einhuga um fjölda tegunda og ýmsir blendingar eru til. Útbreiðsla sýrena er frá suðvestur-Evrópu til Asíu. Stærð er frá 2-10 metrum.
Sýrenur eru vinsælar sem garðtré/runnar og hafa verið ræktaðar á Íslandi um langt skeið. Garðasýrena, fagursýrena, gljásýrena og bogsýrena eru helstu tegundir hér.
Helstu tegundir
[breyta | breyta frumkóða]- Syringa emodi - Höfgasýrena: Norður-Indland, Pakistan, Tíbet, Nepal
- Syringa josikaea - Gljásýrena: Karpatafjöll Úkraínu og Rúmeníu.
- Syringa komarowii - Næfursýrena / Bogsýrena: Kína.
- Syringa oblata - Klaustursýrena: Kórea og Kína.
- Syringa persica: Afghanistan, Pakistan, vestur-Himalaja, Kína.
- Syringa pinetorum - Skúfasýrena : Tíbet og Suður-Kína.
- Syringa pinnatifolia - Kína.
- Syringa pubescens - Flossýrena: Kórea, Kína.
- Syringa reticulata - Drekasýrena / Spegilsýrena: Japan, Kórea, Kína.
- Syringa tomentella - Fölvasýrena / Júnísýrena Tíbet og suður-Kína.
- Syringa villosa - Dúnsýrena: Kórea og Kína.
- Syringa vulgaris - Garðasýrena: Balkanskagi.
Blendingar
[breyta | breyta frumkóða]- S. × diversifolia (S. oblata × S. pinnatifolia)
- S. × henryi (S. josikaea × S. villosa)
- S. × hyacinthiflora (S. oblata × S. vulgaris)
- S. × josiflexa (S. josikaea × S. komarowii)
- S. × laciniata (S. protolaciniata × S. vulgaris)
- S. × persica (S. protolaciniata × unknown)
- Syringa × prestoniae (S. komarowii × S. villosa): Fagursýrena.
- S. × swegiflexa (S. komarowii × S. sweginzowii)
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Lystigarður Akureyrar - Síður viðkomandi tegunda Geymt 28 júlí 2019 í Wayback Machine
- Fyrirmynd greinarinnar var „Syringa“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 15. ágúst 2019.