Rex Linn
Rex Linn | |
---|---|
Fæddur | Rex Maynard Linn 13. nóvember 1956 |
Ár virkur | 1986 - |
Helstu hlutverk | |
Frank Tripp í CSI: Miami |
Rex Maynard Linn (fæddur 13. nóvember 1956) er bandarískur leikari sem er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Frank Tripp í CSI: Miami
Einkalíf
[breyta | breyta frumkóða]Linn fæddist í Hansford County í Texas, Bandaríkjunum. Árið 1969 fluttist fjölskylda hans til Oklahoma borgar og stundaði hann nám við Heritage Hall og seinna meir við Casady School, sem er einkarekinn skóli tengdur Episcopal kirkjunni. Eftir að hafa séð Jack Nicholson leika í One Flew Over the Cuckoo's Nest árið 1975, tilkynnti hann að hann ætlaði sér að verða leikari. Því miður þá minnkaði líkur hans á leikaraferli strax í menntaskóla, þegar við eina færsluna á Fiddler On The Roof, eyðilagði hann næstum því sviðsmyndina í einu af dansatriðunum, Linn var beðinn um að hætta í leikritinum af leikstjóranum. Honum var sagt að nota orkuna sína einhversstaðar annarsstaðar. Lauk hann námi við Oklahoma-ríkisháskólann árið 1980 með gráðu í Útvarpi/Sjónvarpi/Kvikmyndum.
Linn býr í Sherman Oaks, Kaliforníu, með hundunum sínum, Jack and Choctaw, ásamt því að vera harður aðdáandi University of Texas Longhorns og hefur m.a. tekið sér frí frá CSI: Miami til þess að mæta á 2005 Rose Bowl leikinn þar sem lið hans var að spila gegn University of Southern California.
Linn er ákafur stuðningsmaður barnahjálparstarfa og hefur keppt í stjörnu gólfmótum fyrir barnarhjálpir, liðgigtarsamtök og fyrir blindrasamtök.
Ferill
[breyta | breyta frumkóða]Fyrsta hlutverk hans fékk hann í myndinni, Dark Before Dawn, sem var framleidd af vini hans Edward K. Gaylord II. Það sem mestu skipti máli var að hann varð meðframleiðandi að myndinni. Þetta gaf honum tækifæri á að kynnast hinni hliðinni á kvikmyndum sem átti eftir að hjálpa honum í heimi leikara.
Árið 1989, þá var hann ráðinn í fyrsta stóra hlutverkið sem raðmorðinginn Floyd Epps, í Night Game, ásamt Roy Scheider. Eftir myndina og hlutverk sem fógeti í Young Riders ákvað hann að flytjast vestur til Los Angeles. Fyrstu þrjú árin stundaði hann leiklist hjá Silvana Gallardo við Studio City og vann mikið með vini sínum Robert Knott sem einnig var leikari, við ýmsa byggingarvinnu.
En smátt og smátt þá byrjaði hann að fá hlutverk þar á meðal í My Heroes Have Always Been Cowboys (1991), Thunderheart (1992), og Sniper (1993), ásamt gestahlutverkum í sjónvarpsþáttum í Northern Exposure, Raven, og The Adventures of Brisco County Jr. Í apríl 1992 þá fékk hann stórahlutverkið sem fulltrúi fjármálaráðuneytisins, Richard Travers, í myndinni Cliffhanger. Myndin kom Rex á kortið.
Síðan Cliffhanger, þá hefur Rex komið fram í yfir 35 kvikmyndum sem eykst með hverju ári. Frá 2002-2012 lék hann rannsóknarfulltrúanns Sgt. Frank Tripp í CSI: Miami.
Kvikmyndir og sjónvarp
[breyta | breyta frumkóða]Kvikmyndir | |||
---|---|---|---|
Ár | Kvikmynd | Hlutverk | Athugasemd |
1986 | Shadows on the Wall | ónefnt hlutverk | sem Rex Lynn |
1988 | Bonanza: The Nex Generation | Cease | Sjónvarpsmynd |
1988 | Dark Before Dawn | Don Hayse | |
1989 | The Bounty Hunter | Lögreglumaður nr. 1 | sem Rex Lynn |
1989 | Oklahoma Passage | Quantrill | Sjónvarps míní-sería |
1989 | Night Game | Epps | |
1989 | Desperado: The Outlaw Wars | Logan | Sjónvarpsmynd sem Rex M. Linn |
1990 | Across Five Aprils | Jake | |
1991 | My Heroes Have Always Been Cowboys | Gestur á matsölustað | |
1991 | The Gambler Returns: The Luck of the Draw | Henry | Sjónvarpsmynd |
1992 | In the Line of Duty: Siege at Marion | Fógetinn Ron Gray | Sjónvarpsmynd |
1992 | Thunderheart | Alríkisfulltrúi | |
1993 | Sniper | Ofursti | óskráður á lista |
1993 | Cliffhanger | Travers | |
1994 | Independence Day | Nágranni | |
1994 | Iron Will | Joe McPherson | |
1994 | Confessions: Two Faces of Evil | Gleason | Sjónvarpsmynd |
1994 | Wyatt Earp | Frank McLaury | |
1994 | Clear and Present Danger | Washington rannsóknarfullrúi | |
1994 | Drop Zone | Bobby | |
1995 | Perfect Alibi | Barþjónn | |
1995 | Cutthroat Island | Herra Blair | |
1996 | Public Enemies | Al Spencer | |
1996 | Tin Cup | Dewey | |
1996 | The Long Kiss Goodnight | Maður í rúmi | |
1996 | Ghosts of Mississippi | Martin Scott | |
1997 | Last Stand at Saber River | Bill Dancy | Sjónvarpsmynd |
1997 | Breakdown | Fógetinn Boyd | |
1997 | The Postman | Mercer | |
1997 | Alone | Travis Floyd | |
1998 | The Odd Couple II | JayJay | |
1998 | Black Cat Run | Fógetinn Ben Bronte | |
1998 | Rush Hour | Alríkisfulltrúinn Daniel Whitney | |
1999 | Blast from the Past | Dave | |
1999 | The Jack Bull | Shelby Dykes | Sjónvarpsmynd |
1999 | A Murder on Shadow Mountain | Rannsóknarfulltrúinn Bonney | Sjónvarpsmynd |
1999 | Instinct | Vörðurinn Alan | |
1999 | Y2K | Verkstjóri kjarnorkuverksmiðju | Sjónvarpsmynd |
2001 | Crossfire Trail | Luke Taggart | Sjónvarpsmynd |
2001 | Ghosts of Mars | Yared | |
2002 | The Salton Sea | Rannsóknarfulltrúinn Bookman | |
2002 | The Round and Round | Fógeti | |
2003 | Monte Walsh | Hat Henderson | Sjónvarpsmynd |
2003 | The Hunted | Powell | |
2003 | Dry Cycle | Jeddidah | |
2003 | Cheaper by the Dozen | Þjálfarinn Bricker | |
2004 | After the Sunset | Fulltrúinn Kowalski | |
2005 | The Zodiac | Jim Martinez | |
2005 | American Gun | Earl | |
2006 | Two Tickets to Paradise | Karl | |
2006 | Abominable | Bóndinn Hoss | |
2007 | The Grand Ride of the Abernathy Boys | Þulur | |
2008 | Appaloosa | Clyde Stringer | |
2008 | Trial by Fire | Foringi | |
2009 | The Macabre World of Lavender Williams | Fógetinn Murdstone | |
2012 | Atlas Shrugged II: The Strike | Kip Chalmers | |
2012 | Django Unchained | Tennessee Harry | Kvikmyndatökum lokið |
2013 | Devil´s Knot | Rannsóknarfulltrúinn Gary Gitchell | Kvikmyndatökum lokið |
2013 | Flutter | Fógetinn Cole | Í eftirvinnslu |
Sjónvarp | |||
Ár | Titill | Hlutverk | Athugasemd |
1990 | The Young Riders | Fógeti | Þáttur: Hard Time |
1991 | Northern Exposure | Martin | Þáttur: All Is Vanity |
1991 | FBI: The Untold Story | Christopher Wilder | Þáttur: Millionaire Murderer |
1991 | Doogie Howser, M.D. | Billy | Þáttur: It´s a Wonderful Laugh |
1993 | Raven | ónefn hlutverk | Þáttur: Wipe-Out |
1994 | The Adventure of Brisco County Jr. | Mountain McClain | Þáttur: Bounty Hunter´s Convention |
1997 | Nash Bridge | ónefnt hlutverk | Þáttur: Sniper |
1996-1997 | 3rd Rock from the Sun | Chuck / Webber | Þáttur: Frozen Dick (1996) Þáttur: Tom, Dick and Mary (1997) |
1998 | Vengeance Unlimited | J.J. | Þáttur: Eden |
1999 | Walker, Texas Ranger | Fógetinn Lester Stahl | Þáttur: Way of the Warrior |
1999 | Snoops | ónefnt hlutverk | Þáttur: A Criminal Mind |
2000 | The Pretender | Fulltrúinn Ellis Talbot | Þáttur: Spin Doctor |
2000 | Profiler | Fulltrúinn Ellis Talbot | Þáttur: Clean Sweep |
1995-2000 | JAG | Maj. Mark 'Falcon' Sokol / Lt. Mark 'Falcon' Sokol | 6 þættir |
2000-2001 | The Fugitive | Karl Vasick | 5 þættir |
2004 - 2012 | CSI: Miami | Rannsóknarfulltrúinn Frank Tripp | 232 þættir |
2007 | Saving Grace | Wiley | Þáttur: And You Wonder Why I Lie |
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Fyrirmynd greinarinnar var „Rex Linn“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 27. febrúar 2010.
- Rex Linn á IMDb
- Rex Linn ferill á CBS - CSI: Miami Geymt 7 febrúar 2009 í Wayback Machine
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Rex Linn á IMDb
- Rex Linn Bio at CBS - CSI: Miami Geymt 7 febrúar 2009 í Wayback Machine
- Interview with TheStarScoop.com, November 2006 Geymt 14 nóvember 2009 í Wayback Machine