RVK bruggfélag
Útlit
(Endurbeint frá RVK Bruggfélag)
RVK bruggfélag (RVK Brewing Co.) er íslenskur drykkjaframleiðandi, örbrugghús og bruggstofa.[1] Fyrirtækið var stofnað í apríl 2017 og hóf rekstur bruggverksmiðju og lítillar bruggstofu í Skipholti í Reykjavík. Árið 2021 var Bruggstofan við Snorrabraut opnuð.
Félagið hefur framleitt yfir 60 tegundir drykkja. Með helstu bjórtegundunum eru jólabjór og kanilsnúðabjór sem framleiddur var í samstarfi við Brauð&Co.[2]
Eigandi er Sigurður Pétur Snorrason,[3] meðeigendur eru Valgeir Valgeirsson bruggmeistari og Einar Örn Sigurdórsson markaðs- og vörumerkjastjóri.
Fyrirtækið stendur árlega fyrir Bjórhlaupi RVK sem er víðavangshlaup með drykkjarstöðvum þar sem hlauparar verða að klára einn bjór áður en þeir geta hlaupið áfram.[4]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Valgeir Valgeirsson ráðinn bruggmeistari RVK Brewing Co.
- ↑ Grein á mbl.is um RVK Brewing Co. og Kanilsnúðabjórinn Co&Co
- ↑ „Áfengisgjöldin þungur baggi á litlum brugghúsum – Vísir“. visir.is. Sótt 27. ágúst 2019.
- ↑ „Bjórhlaup í Nauthólsvík“. K100. Sótt 27. ágúst 2019.