Múrsía
Útlit
Múrsía (spænska: Murcia) er spænsk borg í samnefndu sjálfstjórnarhéraði. Borgin er sjöunda stærsta borg landsins með rúmlega 443 þúsund íbúa (2017). Borgin stendur við fljótið Segura og samnefndan dal. Loftslag í borginni er þurrt og eru 320 sólardagar þar á ári að meðaltali.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Murcia.