Levyn
Útlit
Levyn tilheyrir flokki zeólíta.
Lýsing
[breyta | breyta frumkóða]Myndar glæra eða hvíta, þunna kristala með sexhyrndum útlínum og glergljáa. Levyn þekkist best á því að kristallarnir standa óreglulega og upp á rönd í holunum. Tvíburavöxtur algengur.
- Efnasamsetning: (Ca,Na2,K2)Al2Si4O12 • 6H2O
- Kristalgerð: hexagónal
- Harka: 4-4½
- Eðlisþyngd: 2,09-2,16
- Kleyfni: óregluleg
Útbreiðsla
[breyta | breyta frumkóða]Algengt í ólivínbasalti og þá í kabasít-thomsonít-belti blágrýtisfjallanna. Oft eitt og sér í holum.
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]- Kristján Sæmundsson og Einar Gunnlaugsson (1999) Íslenska steinabókin. ISBN 9979-3-1856-2