Kismajó
Útlit
(Endurbeint frá Kismaayo)
Kismajó (sómalska: Kismaayo) er hafnarborg í norðurhluta Neðra-Júba og höfuðborg fylkisins Júbalands í suðurhluta Sómalíu. Borgin stendur nálægt mynni Júbafljóts. Íbúar á stórborgarsvæðinu eru um hálf milljón.[1] Um 170.000 flóttamenn hafast við hjá borginni.[2]
Tilvísun
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Kismaayo Population 2024“. World Population Review. Sótt 12.7.2024.
- ↑ Somalia Baseline Report: Hirshabelle, Jubaland, South-West State (Report). Alþjóðlega fólksflutningastofnunin. Júní 2024. bls. 16.