Hljóðkerfisfræði
Útlit
Hljóðkerfisfræði er grein málvísinda sem fæst við vensl milli málhljóða. Hljóðkerfisfræði er oft ruglað saman við hljóðfræði, sem einblínir á lýsingar á hljóðum. Hljóðkerfisfræði gengur út á að skoða hljóðkerfi í heild sinni og tekur tillit til hljóðumhverfis (þ.e. hún lýsir því hvernig hljóð hafa áhrif hvert á annað). Hljóðkerfisfræði einbeinist að lýsingu á reglubundnum venslum milli hljóðana (merkingargreinandi eininga í tilteknu tungumáli).[1]
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Eiríkur Rögnvaldsson (1993). Íslensk hljóðkerfisfræði. Háskóli Íslands.