Reiknirit Sesars
Útlit
(Endurbeint frá Hliðrunardulmál)
Reiknirit Sesars[1] er með fyrstu og einföldustu dulritunaraðferðunum. Reikniritið er tegund af umskiptidulritun[2]:en þar sem hverjum staf er skipt út fyrir staf sem hefur verið hliðrað um nokkrar stöður í stafrófinu.
Reikniritið er nefnt í höfuðið á Júlíusi Caesar sem notaði það til að koma hernaðarlegum skilaboðum til herforingja sinna.[1] Auðvelt er að ráða málið og því hentaði það illa þegar mikilvægar, leynilegar upplýsingar voru annars vegar.
Dæmi
[breyta | breyta frumkóða]Í eftirfarandi dæmi er stöfunum hliðrað þremur til hægri:
- A B C D E F G H I J K L M N O P Q R S T U V E X Y Z
Þá verður:
- A = D, B = E, C = F ... X = A, Y = B, Z = C
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ 1,0 1,1 „Hvað er og hvernig verkar dulkóðun?“. Vísindavefurinn.
- ↑ Orð búið til af höfundi.