Frímerki
Útlit
Frímerki er vottun á því að borgað hafi verið fyrirfram fyrir póstsendingu. Fyrsta frímerkið var gefið út í Bretlandi 1. maí 1840, hið svokallaða Penny Black. Fram til þess tíma höfðu viðtakendur póstsendinga greitt fyrir sendingarkostnaðinn.
Með tilkomu frímerkisins færðist greiðsluskyldan nú yfir til sendandans. Fjöldi póstsendinga í Bretlandi tvöfaldaðist á rúmlega ári við þessa einföldu breytingu.
Tengt efni
[breyta | breyta frumkóða]- Íslensk skildingafrímerki voru gefin út 1873-1876.
- Íslensk aurafrímerki voru gefin út 1876-1902.