Flugrekstrarleyfi
Flugrekstrarleyfi er leyfisbréf flugmálayfirvalda viðkomandi lands, sem heimilar flugrekanda að nota loftför í atvinnuskyni.
Flugrekanda (sá er stundar flugrekstur) er þá heimilt að starfrækja tiltekna tegund flutningaflugs, það er rekstur loftfara sem felur í sér flutninga á farþegum, og vörum gegn endurgjaldi. Þeir einir geta sinnt slíku flugi sem hafa til þess gilt flugrekendaskírteini og þá um leið flugrekstrarleyfi (á ensku AOC: Air operator's certificate)
Þess er krafist að rekstraraðilinn hafi starfsmenn, eignir og kerfi til staðar til að tryggja öryggi starfsmanna sinna og almennings. Í vottorðinu verða skráðar loftfarstegundir og skráningar sem nota á, í hvaða tilgangi og á hvaða svæði, á tilteknir flugvöllum eða landsvæði.
Á Íslandi er Samgöngustofa stjórnsýslustofnun allra samgöngumála og þar með flugmála. Stofnunin fer með stjórnsýslu og eftirlit flugmála, öryggiseftirlit samgöngumannvirkja og leiðsögu. Hún heldur loftfaraskrá sem er hin lögformlega skráning á eignarhaldi loftfara, og birtir yfirlit yfir þá sem hafa fengið tilskilin leyfi og skírteini. Til þess að fá flugrekendaskírteini og flugrekstrarleyfi til flutningaflugs á Íslandi þarf að sýna fram á að skilyrðum flugöryggisstofnunar Evrópu EASA (European Aviation Agency) um stjórnun á flugrekstri og lofthæfi séu uppfyllt.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Vefur Samgöngustofu. sem fer með flugmál á Íslandi.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Vefur Samgöngustofu um atvinnuflug.. Listi yfir handhafa flugrekstrarleyfa og fleira.
- Vefur Flugorð Íorðabanka Stofnunar Árna Magnúsonar í íslenskum fræðum.
- Fyrirmynd greinarinnar var „Air operator's certificate“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 29. janúar 2021.