Fastanefndir Alþingis
Útlit
Á Alþingi eru starfandi átta fastanefndir. Kosið er í nefndirnar á þingsetningarfundi að afloknum alþingiskosningum og gildir kosningin fyrir allt kjörtímabilið. Hver þingmaður, að ráðherrum og forseta Alþingis undanskildum, á sæti í einni eða fleiri fastanefnd.
Fastanefndir þingsins fara með eftirlitshlutverk gagnvart framkvæmdavaldinu og er verksvið nefndanna tvíþætt. Nefndirnar fjalla annars vegar um þingmál sem er vísað til þeirra, þ.e. frumvörp, þingsályktunartillögur og skýrslur. Hins vegar hafa nefndirnar heimild til að fjalla um ýmis mál að frumkvæði nefndarmanna án þess að beinlínis sé um þingmál að ræða.[1]
Listi yfir fastanefndir Alþingis:
[breyta | breyta frumkóða]- Allsherjar- og menntamálanefnd
- Atvinnuveganefnd
- Efnahags- og viðskiptanefnd
- Fjárlaganefnd
- Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
- Umhverfis- og samgöngunefnd
- Utanríkismálanefnd
- Velferðarnefnd
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Alþingi.is, „Fróðleikur um nefndarstörf“ (skoðað 12. desember 2020)