Fara í innihald

Föstudagurinn þrettándi

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá Föstudagur 13.)
Föstudagurinn þrettándi á dagatali

Föstudagurinn þrettándi er eins og nafnið gefur til kynna föstudagur. Þessi föstudagur er hins vegar kallaður föstudagurinn þrettándi því hann ber upp á 13. mánaðardag viðkomandi mánuðs. Föstudagurinn þrettándi á engan sérstakan fastan dag á árinu.

Samkvæmt hjátrú eru slæmir atburðir líklegri til að gerast þegar þrettánda dag mánaðar ber upp á föstudegi. Líku er farið með ýmsa aðra hjátrú á tölunni 13. Svo djúpt hefur þessi hjátrú rist að tryggingafélög gátu greint hærri tíðni slysa og óhappa á þessum degi. Ekki telja þó helstu vísindamenn að það stafi af því að dagurinn sé í raun óheilladagur, heldur að hjátrúarfullt fólk sé einum of stressað þennan dag.

Mánuður ár
Janúar 1978, 1984, 1989, 1995, 2006, 2012, 2017, 2023
Febrúar 1976, 1981, 1987, 1998, 2004, 2009, 2015, 2026
Mars 1981, 1987, 1992, 1998, 2009, 2015, 2020, 2026
Apríl 1973, 1979, 1984, 1990, 2001, 2007, 2012, 2018
Maí 1977, 1983, 1988, 1994, 2005, 2011, 2016, 2022
Júní 1975, 1980, 1986, 1997, 2003, 2008, 2014, 2025
Júlí 1973, 1979, 1984, 1990, 2001, 2007, 2012, 2018
Ágúst 1976, 1982, 1993, 1999, 2004, 2010, 2021, 2027
September 1974, 1985, 1991, 1996, 2002, 2013, 2019, 2024
Október 1978, 1989, 1995, 2000, 2006, 2017, 2023, 2028
Nóvember 1981, 1987, 1992, 1998, 2009, 2015, 2020, 2026
Desember 1974, 1985, 1991, 1996, 2002, 2013, 2019, 2024