Endarím

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Endarím

Oft ríma frumlínur saman og síðlínur eru þá hafðar með öðru rími, þessi aðferð kallast víxlrím

Myndum kyrrð í stóru stóði,
stýfum, girðum, brýnum hníf,
ketti myrðum köldu blóði,
kátir virðum ekkert líf.

Stundum eru allar línur ljóðsins látnar ríma saman og er þá talað um samrím

Allvel Dagbjört aldur ber
ungleg sýnist mér
í Reykjadalnum öldruð er
þó ekki sé það hér

Þegar hins vegar fyrri hendingin rímar og síðari hendingin er höfð með öðru rími er ljóðið misrímað

Komum í bifreið að Baugaseli,
báðir í sokkum úr ullarþeli.
Löbbuðum léttfættir Barkárdalinn,
lítið var áð því enginn var kvalinn

Séu ljóðlínur fleiri og tvær og tvær ljóðlínur látnar ríma saman er talað um .runurím

Skórnir mínir skilja, hlýða
og skilyrðislaust alltaf bíða
aldrei þeir með öðrum fara
í anddyrinu liggja bara
fagra skóna fann ég ekki
fúlir nemar stunda hrekki
skimaði í áttir allar
angistin í huga kallar