Dygð
Útlit
(Endurbeint frá Dyggð)
Dygð eða dyggð (latína virtus; gríska ἀρετή) er siðferðilegt ágæti manneskju. Dygð er skapgerðareinkenni sem er talið jákvætt. Andstæðan er nefnd löstur.
Dygðir
[breyta | breyta frumkóða]Í fornöld voru dygðir meginkjarni allrar siðfræði. Dygðir voru taldar vera ýmist vitrænar eða siðrænar.
- Meðal vitrænna dygða má nefna:
- νοῦς τῶν ἀρχῶν (nous tōn arkhōn) - skilningur
- ἐπιστήμη (epistēmē) - þekking
- σοφία (sofía) - viska
- φρόνησις (fronēsis) - hyggindi
- Helstu siðrænu dygðirnar voru:
- ἀνδρεία (andreia) - hugrekki
- σωφρoσύνη (sōfrosynē) - hófstilling
- ἐλευθεριότης (elevþeriotēs) - veglyndi
- μεγαλoπρεπεία (megaloprepeia) - stórlyndi
- μεγαλoψυχία (megalopsykhia) - mikillæti
- φιλoτιμία (filotimia) - mátulegur metnaður
- εὐτραπελία (evtrapelia) - háttvísi
- ἀληθεία (alēþeia) - sannsögli
- φιλία (filia) - vinátta
- δικαιoσύνη (dikaiosynē) - réttlæti