Dreifð afneitun leyndarmála
Dreifð afneitun leyndarmála (á ensku: Distributed Denial of Secrets, skammstafað DDoSecrets) er vefsíða eða samfélag uppljóstrara stofnuð var árið 2018 til að auðvelda frjálsa miðlun gagna í þágu almannahagsmuna með fréttaleka og birtingu skjala úr ýmsum gagnasöfnum heimsins til að gera.
Á vef DDoSecrets er birtar greinar sem oftast eru sendar inn nafnlaust og leka á internetið viðkvæmum upplýsingum frá ríkisstjórnum, fyrirtækjum og öðrum samtökum. Vefsíðan hefur stundum verið nefnd sem arftaki WikiLeaks.[1] Bandaríska rannsóknarblaðakonan Emma Best, er annar stofnandi vefsins[2] sem fór í loftið 3. desember 2018.
Vefurinn sem er ekki rekinn í hagnaðarskyni er hvað best þekktur útgáfu í júní 2020 á stóru safni innri lögregluskjala, þekkt sem BlueLeaks. Vefurinn er meðal annars talinn veita hvað mestan opinberan aðgang að rússneskum skrám sem lekið hefur verið eftir að innrás Rússa hófst í Úkraínu í febrúar 2022.
Á vefnum er einnig birt mikið safn gagna um rússneskt fáveldi, fasistahópa, skúffufyrirtæki og bankastarfsemi á aflandseyjum og í skattaskjólum.
Í apríl 2022 hýsir vefur tugi terabæta af gögnum frá yfir 200 stofnunum.[3]
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Fyrirmynd greinarinnar var „Distributed Denial of Secrets“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 6. maí 2022.
- Vefur DDoSecrets - á ensku en skjöl birt á upprunalega tungumálinu
- ↑ Financial Times (maí 2022). „Russia pummelled by pro-Ukrainian hackers following invasion“. Financial Times. Sótt maí 2022.
- ↑ DDSsecrets. „About DDSsecrets“. Sótt maí 2022.
- ↑ „Distributed Denial of Secrets is Spreading Stolen Russian Data“. Bloomberg.com (enska). 6. apríl 2022. Sótt 6. maí 2022.