Fara í innihald

Borgundarhólmur

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Rønne er stærsti bær eyjarinnar.
Borgundarhólmur er í Eystrasalti.

Borgundarhólmur (danska: Bornholm) er eyja í Eystrasalti, sem tilheyrir Danmörku, þótt hún liggi alllangt austur af landinu og sé nær suðurströnd Svíþjóðar en Danmörku. Eyjan er 588,30 km² að flatarmáli og þar bjuggu 40.215 manns árið 2014, en samkvæmt nýjustu tölum er mannfjöldi nú kominn niður fyrir 40 þúsund manns, í fyrsta sinn í meira en öld. Rønne er stærsta borgin. Á eynni eru fjölmargar hringkirkjur, sumar margra alda gamlar. Þar er einnig kastalinn Hammershus, sem var byggður á miðöldum. Nokkurt skóglendi er á Borgundarhólmi, m.a. skógurinn Almindingen (Almenningur) sem er þriðji stærsti skógur í Danmörku, 3.800 ha. Strandlengjan er 141,4 kílómetrar.

* www.brk.dk Geymt 9 mars 2010 í Wayback Machine

Umfjöllun í blöðum

[breyta | breyta frumkóða]